You are here:

Barnanámskeiðin hefjast á sunnudaginn

barnanamskeidBarnanámskeið hefjast n.k. sunnudag 5 febrúar.

(sjá mætingartíma og hópaskiptingu undir nánar)

Nánar...

Fundur um fasteignagjöld hesthúsa

Fakur_logo_thumb_medium247_234Hestamannafélagið Fákur boðar til fundar nk. mánudag, 6. febrúar  kl. 18:30 í félagsheimili Fáks, um hækkun á álagningu fasteignagjalda á hesthúsum í Reykjavík.

Allir hesthúseigendur eru hvattir til að mæta sem og aðrir sem eiga hagsmuna að gæta.
Fulltrúar Reykjavíkurborgar sjá sér vonandi fært um að þiggja boðið og mæta á fundinn.

Hestamannafélagið Fákur,
Rúnar Sigurðsson formaður.

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag

diddi_grunur_k_thumb_medium350_291Sigurbjörn Bárðarson fagnar þeim merka áfanga að komast á sjötugsaldurinn í dag því kallinn er sextugur í dag (2. febrúar). Til hamingju með daginn Diddi og gangi þér vel í Meistaradeildinni í kvöld.

Uppskeruhátíð barna og unglinga í kvöld kl. 18:00

Uppskeruhtbarna2010Öll börn og unglingar eru boðin velkomin á uppskeruhatíð Fáks í kvöld kl. 18:00 Margt verður til gamans gert, skemmtikraftur kemur og skemmtir, verðlaunaveitingar, pizza og gos og allt frítt að sjálfssögðu.

Allir að mæta.

Gámadagar í vetur

gmarGámar fyrir rúlluplast og annað rusl verða á Fákssvæðinu fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði í vetur, á milli kl. 17.00 og 19.00. Gámarnir eru staðsettir á planinu við félagsheimilið og sér Gunnar Bogason um eftirlit með þeim og ber að hlýta honum um frágang á rusli og umgengni á svæðinu.

Mikilvægt er að flokka vel það sem í gámana fer því í annan gáminn má bara fara rúlluplast. BARA RÚLLUPLAST.  Í hinn gáminn fara baggabönd,  plastpokar utan af spónaböllum og annað rusl sem er ekki stórt í sniðum.

Gámadagar 2012

7. febr.

6. mars

3. apríl

1. maí

28. maí

Íslenski hesturinn og fólk með fötlun

Íþróttasamband fatlaðra og Hestamannafélagið Hörður, Mosfellsbæ,
standa fyrir ráðstefnu um hestamennsku fyrir fólk með fötlun
laugardaginn 11.febrúar 2012 kl. 10.00 – 16.00.

Íslenski hesturinn hefur reynst vel við þjálfun og endurhæfingu fólks með fötlun.  
Hestaíþróttir eru keppnisgrein á ólympíumótum fatlaðra og á alþjóðaleikum Special Olympics
og á Íslandi er verið að þróa keppnisform fyrir fólk með fötlun.

Markhópur ráðstefnu eru þeir  sem unnið hafa að þessum málum og aðrir sem áhuga hafa

Dagkrá (sjá nánar)

Nánar...

Félagsgjöldin 2012

Fakur_logo_thumb_medium175_165Félagsgjöldin eru að koma þessa dagana til félagsmanna í Fáki fyrir árið 2012

Nú er smá breyting á félagsgjöldunum sem var samþykkt á síðasta aðalfundi þannig að börn og unglingar borga ekki félagsgjald en ungmenni (fædd á árunum 1992-1995) greiða kr. 3.000. Fullorðnir greiða kr. 8.500 en 70 ára og eldri borga ekki félagsgjöld en hafa full réttindi sem og ævifélagar í Fáki.

Þeir sem ekki greiddu félagsgjöld í fyrra fá ekki greiðsluseðil í ár og verða að hafa samband við skrifstofu Fáks ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) ef þeir vilja halda áfram að vera félagar í Fáki.

Ef ekki er búið að greiða félagsgjödlin á eindaga þá falla öll réttindi félagsmanna niður s.s.aðgangur að reiðhöll, þátttaka í mótum osfrv.

Við þökkum skilvísum félagsmönnum í Fáki fyrir sínar greiðslur.

Uppskeruhátíð barna og unglina í Fáki

unglingauppskeruht2010Uppskeruhátíð barna og unglinga í Fáki verður haldin nk. miðvikudagskvöld kl. 18:00

Margt skemmtilegt verður gert, skemmtikraftur kemur í heimsókn, verðlaunaveitingar, pizza og gos í boði Fáks, leikir ofl.

Allir að mæta og hafa gaman saman og að sjálfssögðu allt frítt.

Síða 1 af 42